Heimila lundaveiði fyrstu 15 dagana í ágúst

Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja í gær var samþykkt að heimila lundaveiði í Vestmannaeyjum dagana 1. – 15. ágúst 2022.

Fyrir fundinum lágu fyrir álit Bjargveiðifélags Vestmannaeyja og Náttúrustofu Suðurlands.

Fram kemur í niðurstöðu ráðsins að ráðið telji afar mikilvægt að stýring veiða á lunda í Vestmannaeyjum taki á öllum stundum fyrst og fremst mið af viðkomu stofnsins. Samkvæmt lögum er veiðitímabil lunda að öllu jöfnu frá 1. júlí til 15. ágúst eða 46 dagar. Reynsla síðastliðinna ára hefur sýnt að þeir fáu dagar sem lundaveiði er heimiluð eru nýttir til þess að viðhalda þeirri merkilegu menningu sem fylgir veiðinni og úteyjarlífi almennt. Þá er tíminn nýttur til að viðhalda húsnæði úteyjanna og huga að öðru sem fylgir úteyjunum. Lundaveiðimenn hafa sýnt ábyrgð í veiðum s.l. ár og veiðifélögin eru áfram hvött til að standa vörð um sitt nytjasvæði og upplýsi sína félagsmenn um að ganga fram af hófsemi við veiðarnar.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast