Strákarnir mæta botnliðinu í dag

Í dag fer fram frestaður leikur Harðar og ÍBV í Olís deild karla. Um er að ræða leik úr 12. umferð mótsins.

Eyjaliðið er sem stendur í sjöunda sæti deildarinnar með 20 stig en liðið hefur leikið tveimur leikjum færra en flest öll liðin þar fyrir ofan.

Lið Harðar hefur enn ekki náð að vinna leik. Eru á botni deildarinnar með 2 stig í 17 leikjum. Flautað er til leiks klukkan 18.00 á Ísafirði í dag.

 

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast