Kínverjar áhugasamir um göng til Eyja

He Rulong, sendi­herra Kína á Íslandi, seg­ir viðræður standa yfir um beint flug frá Kína til Íslands. Rætt sé um að það geti orðið að veru­leika á næstu þrem­ur til fimm árum en hann vilji sjá það verða að veru­leika fyrr.

Þetta kom fram í há­deg­is­verðarboði í kín­verska sendi­ráðinu í vikunni og greint var frá á síðum Morgunblaðsins.

Sendi­herr­ann sagði slíkt beint flug geta skapað marg­vís­leg tæki­færi í ís­lenskri ferðaþjón­ustu. Þá sé þess að vænta að kín­versk­um ferðamönn­um muni fjölga og metið frá 2019 senn falla en þá voru 139 þúsund brott­far­ir Kín­verja frá Kefla­vík­ur­flug­velli, sam­kvæmt töl­um frá Ferðamála­stofu.

Þá kom fram í máli sendiherrans að kín­versk fyr­ir­tæki kynnu að sýna því áhuga að byggja upp sam­göngu­innviði á Íslandi. Nefndi hann svo umræður um að gera göng til Vest­manna­eyja.

Annars styttist í að niðurstöður starfshóps um könnun á fýsileika jarðganga á milli lands og Vestmannaeyja verði kynntar, en það á að gerast í næsta mánuði.

Stefna á að skila af sér í maí

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast