Eyjamenn með bakið upp við vegg

Þriðja viðureign ÍBV og FH fer fram í dag, sunnudag. Leikið er í Kaplakrika, en staðan í einvíginu er 2-0 fyrir FH-inga.

Það er því ekkert annað en sigur sem kemur til greina hjá ÍBV í dag, ef ekki – tekur við sumarfrí hjá liðinu. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV segir að nú sé þörf á öllum þeim stuðningi sem þeir mögulega geti fengið. Skráning í rútu er í fullum gangi í bæði 12:00 ferðina sem fer á Ölhúsið fyrir leik og keyrir stemmninguna í gang. Verðum á Ölhúsinu um 15:00 og síðan er einnig skráning í 14:30 ferðina sem fer beint á Kaplakrika.

Leikurinn hefst svo klukkan 18.30, en hann er í beinni á Handboltapassanum.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast