Herjólfur til Þorlákshafnar

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinni ferð dagsins. Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00. Brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45, segir í tilkynningu frá Herjólfi ohf.

Þar segir jafnframt að Herjólfur sigli til Þorlákshafnar þar til annað verður tilkynnt eins og hér segir: Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 07:00 og 16:00: Brottför frá Þorlákshöfn kl.10:45 og 19:45.

Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni.

Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast