Þrettándagleðin verður 3. janúar

Að venju verður Þrettándagleði ÍBV og Íslandsbanka haldin á föstudegi. Á næsta ári verða hátíðarhöldin þann 3. janúar.

Hægt er að taka forskot á sæluna, því í ár verður ný heimildarmynd um Þrettándann frumsýnd á milli jóla og nýars.

Myndin verður frumsýnd 27. desember næstkomandi í Eyjabíói sem og í Háskólabíói. Hin einstaka Þrettándagleði hefur verið haldin óslitið í núverandi mynd í ríflega sjötíu ár. Áhugasamir Eyjamenn og aðrir unnendur hátíðarinnar geta nálgast miða á söfnunarsíðu framleiðenda myndarinnar hjá Karolina Fund.

Brot úr myndinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast