Rann­sókn­ar­efni hverj­um datt þetta í hug

Þetta sagði Ásmund­ur Friðriks­son, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, á Alþingi í dag í umræðum um störf þings­ins þar sem hann gerði sam­göngu­mál á milli Vest­manna­eyja og lands að um­tals­efni. Vísaði hann til þeirr­ar ákvörðunar að nota Breiðafjarðarferj­una Bald­ur í stað Herjólfs. Mbl.is greinir frá.

„Það þarf auðvitað að skoða hverj­um dett­ur slíkt í hug, að bjóða 5.000 manna sam­fé­lagi, stærstu ver­stöð lands­ins, upp á slík­ar sam­göng­ur sem hafa verið með þeim ein­dæm­um síðustu vik­ur að þær hafa verið nán­ast eng­ar. Það hlýt­ur að vera krafa Eyja­manna til okk­ar á hinu háa Alþingi að við kipp­um þeim mál­efn­um í lag og að þetta komi ekki fyr­ir aft­ur þegar Herjólf­ur fer í slipp.“

Þingmaður­inn sagði ríkja kröfu í Vest­manna­eyj­um, sem komið hefði fram á fjöl­menn­um íbúa­fundi þar í síðustu viku að þegar siglt væri í Land­eyja­höfn skuli ávallt vera sex ferðir á dag að lág­marki og að þegar yrðu hafn­ar rann­sókn­ir á höfn­inni með það að mark­miði að bæta inn­sigl­ingu henn­ar þannig að hægt yrði að nota hana sem heils­árs­höfn.

Sömu­leiðis að far­gjöld til Þor­láks­hafn­ar yrðu þau sömu og til Land­eyja­hafn­ar og að rekst­ur ferj­unn­ar yrði í hönd­um heima­manna og hagnaður af hon­um nýtt­ur til að lækka far­gjöld og auka þjón­ust­una. „Við þurf­um að hlusta á Vest­manna­ey­inga og þær sann­gjörnu kröf­ur sem þeir setja upp í sam­göngu­mál­um.“

 

Mbl.is

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast