Vindur tefur fyrir viðgerð

Viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3 er hafin og eru aðstæður krefjandi þessa stundina á þeim stað sem bilunin er.

Fram kemur í facebook-færslu á síðu Landsnets að talsverður vindur geri viðgerðarmönnum erfitt fyrir.

„Okkar fólk bíður átekta á sandinum eftir að vind lægi og hægt verði að halda áfram að fleyta strengnum í land. Ef allt gengur eftir og veðurguðirnir verði með okkur í liði þá munum við ljúka þeirri vinnu í kvöld.“ segir jafnframt í færslunni.

Myndin sem fylgir (hér að neðan) var tekin seint í gær þegar viðraði vel til viðgerðarinnar. Myndin að ofan var tekin sólarhring fyrr.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast