Unnið á miklu dýpi við erfiðar aðstæður

Áfram er unnið að viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3. Í dag hefur vinna við að hreinsa sand ofan af bilaða strengnum haldið áfram.

Á facebook-síðu Landsnets segir að það sé seinlegt verk þar sem kafararnir séu að vinna á miklu dýpi og við mjög erfiðar aðstæður.

„Vonumst til að geta tekið strenginn upp í Henry P Lading um helgina en eins og áður erum við mjög háð góðum veðurglugga. Ef allt gengur að óskum munum við geta tengt saman nýja strengbútinn og þann gamla um eða eftir helgi.“ segir ennfremur í færslunni.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast