Í kvöld var kveikt á ljósaverkinu „Heimaklettur í nýju ljósi“ við tónlist Júníusar Meyvants í tilefni af 50 árum frá Heimaeyjargosi og 60 árum frá Surtseyjargosi.
Hægt er að hlusta á tónlistina við verkið á fm 104.7. Myndir frá verkinu má sjá hér að neðan.
Uppfært: Listamaðurinn sem sem hannaði og stýrði lýsingunni heitir Örn Ingólfsson og er ljósameistari HljóðX. Hann notaði í verkið 20 stykki Martin Mac Ultra ljós.