Hætta á truflun á rafmagni á sunnudag

Viðgerð á Vestmannaeyjastreng stendur nú yfir. Í tilkynningu frá Landsneti og HS Veitum segir að hætta sé á rafmagnstruflunum á milli 10 og 15 á morgun, sunnudag

„Undanfarna viku hefur undirbúningur fyrir viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3 staðið yfir á sjó og á Landeyjasandi. Sunnudaginn 16. júlí verður vinna í gangi í Vestmannaeyjum sem mögulega gæti leitt til rafmagnstruflana á milli kl. 10 – 15.   Næstu daga  mun elsti strengurinn til Eyja og varaflsvélar sjá Vestmannaeyjum fyrir rafmagni þar til viðgerð á Vestmannaeyjastreng 3 lýkur. Nánari upplýsingar um viðgerðina er að finna á www.landsnet.is.

Hvetjum við til þess að farið verði sparlega með rafmagn á meðan á þessu stendur og minnum á að ef til truflana kemur munum við birta upplýsingar á bæði heimasíðu og samfélagsmiðlum Landsnets og HS Veitna.

Takk fyrir skilninginn og þolinmæðina.“ segir í tilkynningu Landsnets og HS Veitna.

 

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast