Gjöf frá dagdvölinni á Hraunbúðum

Undanfarin ár hafa nemendur í Kirkjugerði farið aðra hvora viku í heimsókn á Hraunbúðir þar sem þau hafa spjallað, leikið og sungið með heimilisfólki sem og fólkinu sem kemur í dagdvölina.

Í dag fór hópur nemenda og tók við veglegri gjöf frá dagdvölinni, en fólkið þar hefur saumað poka með útsaumi á og fyllt þá af heimaprjónuðum vettlingum.

Fram kemur á vef Vestmannaeyjabæjar að Ragnheiður hafi afhent börnunum einn poka fyrir hverja deild, flokkað eftir stærð. Er þeim á Hraunbúðum þakkað kærlega fyrir rausnarlega gjöf sem mun nýtast vel í vetur.

Fleiri myndir frá heimsókninni má sjá hér.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast