Bónus-vinningur til Eyja

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti kvöldsins.

Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmar 213 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðinn var keyptur í Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum og hinn í Vídeómarkaðnum, Hamraborg 20a í Kópavogi.

Fimm miðaeigendur voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100.000 krónur hver. Allir miðarnir eru í áskrift, segir í frétt á heimasíðu Getspár.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast