Aðstæður hafa verið erfiðar

Straumar og öldur hafa verið að gera viðgerðarmönnum lífið leitt á viðgerðarstað Vestmannaeyjalínu 3. Aðstæður á hafsbotninum hafa verið erfiðar og hefur ekki enn tekist að hreinsa ofan af gamla strengnum.

Hreinsa þarf um 150 metra til að strengurinn skemmist ekki þegar honum er lyft upp úr sjónum. Þetta kemur fram í færslu nú eftir hádegið á facebook-síðu Landsnets.

Þar segir jafnframt að pramminn, Henry P Lading, fari út í dag og með honum kafarar sem koma að hreinsunarvinnunni. Á meðan í landi höfum við verið að undirbúa tengingar sæstrengsins þannig að allt verði tilbúið þegar við klárum að tengja úti á sjó. Eins og staðan er núna gerum við ráð fyrir að viðgerð ljúki um aðra helgi en það er auðvitað háð því að veður haldist gott á svæðinu.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast