Jólin með þér – opið í dag til kl. 22

Í dag er vert að gera sér ferð í Akóges þar sem boðið verður upp á sannkallaða jólastemningu.

Meðal þess sem boðið verður upp á er heitt kakó, jólaglögg, sörur og ristaðar jólamöndlur frá Gott. Þá verða nýjar vörur frá Skvísubúðinni til sölu auk þess sem hægt verður að gera góð kaup á hárvörum ýmiskonar, en fyrstu fimm kaupendurnir á hárvörum fá kaupauka frá HárArt.

Hægt verður að kaupa Gott gjafabréf á afslætti, og svo verður glaðningur fyrir börnin. Þá verður 15-20% afsláttur af öllum vörum. Það er því um að gera að líta við í Akóges milli klukkan 13.00 og 22.00 í dag.

Þess má geta að opið er í flestum búðum í bænum til 22 í kvöld. 

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast