Elísabet Rut lék í sigurleik gegn Tyrkjum

Elísabet Rut Sigurjónsdóttir, leikmaður ÍBV byrjaði í dag sinn fyrsta landsleik fyrir Íslands hönd þegar U-15 ára landslið Íslands lagði Tyrki að velli 5-2 í Póllandi.

Fram kemur á vefsíðu ÍBV að Elísabet hafi leikið fyrri hálfleikinn en staðan að honum loknum var 1-0. Í upphafi síðari hálfleiks jöfnuðu Tyrkir metin en það var Thelma Karen Pálmadóttir leikmaður FH sem skoraði síðustu fjögur mörk Íslands en inn á milli marka hennar minnkuðu Tyrkir muninn í 3-2.

5-2 því lokatölur og Ísland í góðri stöðu í riðlinum fyrir hina tvo leikina gegn Litháen og gestgjöfum Póllands.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast