Vinnuhópur skipaður til að undirbúa komu flóttafólks

Þann 9. mars sl., sendi félags- og vinnumálaráðuneytið, sveitarfélögum erindi vegna móttöku flóttafólks. Ástandið í Úkraínu og vaxandi fjöldi flóttafólks hefur verið áberandi í umræðunni síðustu daga og vikur. Hafa nokkur sveitarfélög lýst yfir vilja til að taka á móti flóttafólki.

Gert er ráð fyrir að fjöldi einstaklinga muni koma til Íslands í leit að skjóli vegna stríðsátaka. Skipaður hefur verið sérstakur aðgerðarhópur af hálfu ráðuneytisins vegna verkefnisins, þar sem leitað er bæði eftir lausnum vegna neyðarviðbragða í ljósi fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd sem og varanlegri lausn eftir að vernd er veitt.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur verið að þróa samræmda móttöku flóttafólks í samstarfi við fimm sveitarfélög og er unnið að því að festa móttökukerfið í sessi. Að verkefninu koma auk sveitarfélaga, Vinnumálastofnun og Fjölmenningarsetur auk þess sem ráðuneytið er með samning við Rauða krossinn um félagslegan stuðning.

Nú þegar hefur fjöldi aðila boðið fram húsnæði um allt land í verkefnið og því hefur verið settur upp sérstakur hlekkur á heimasíðu Fjölmenningarseturs þar sem hægt er að skrá húsnæði til leigu og verður þeim upplýsingum miðlað til sveitarfélaganna.

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið óskar eftir þátttöku sveitarfélaga í þessu brýna verkefni, þar sem þátttakan getur verið sniðin að stærð og getu hvers sveitarfélags.

Málið var rætt á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í vikunni. Þar fól bæjarráð, bæjarstjóra og framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, að setja sig í samband við félagsmálaráðuneytið, Útlendingastofnun og nýskipaðan aðgerðahóp, til þess að bjóða fram aðstoð sveitarfélagsins vegna móttöku flóttafólks, á grundvelli þeirrar aðstoðar sem umræddir aðilar óska eftir og lögheimilissveitarfélög veita skv. leiðbeinandi reglum þar um.

Bæjarráð þakkar velvilja þeirra íbúa sem boðið hafa ýmis konar aðstoð í tengslum við mögulega móttöku flóttamanna frá Úkraínu.

Ákveðið hefur verið að setja á laggirnar vinnuhóp á vegum Vestmannaeyjabæjar, sem hafi það hlutverk að aðstoða flóttafólk við að komast inn í samfélagið í Vestmannaeyjum. Vinnuhópurinn verður skipaður þeim Láru Konráðsdóttur, félagsráðgjafa, Drífu Gunnarsdóttur, fræðslufulltrúa, Klaudia Beata Wanecka, fjölmenningarfulltrúa og Önnu Rós Hallgrímsdóttur, skólastjóra GRV.

Í sameiginlegri bókun bæjarráðs segir að grimmileg innrás Rússa í Úkraínu hafi kallað yfir úkraínsku þjóðina miklar hörmungar og hefur fjöldi fólks lagst á flótta. Undirrituð telja mikilvægt við slíkar aðstæður að sýna Úkraínumönnum stuðning og telja Vestmannaeyjabæ vel til þess fallinn að taka á móti flóttafólki í samstarfi við stjórnvöld. Mikilvægt er að undirbúa mögulega komu fólks vel og sinna verkefninu með sóma.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast