Djúpt en von­andi stutt sam­drátt­ar­skeið

Greining Íslandsbanka hefur gefið út nýja og ítarlega þjóðhagsspá fyrir árin 2020-2022, þá fyrstu frá samkomubanni.

Góðu heilli voru fjölmargar stoðir íslenska hagkerfisins býsna sterkar þegar COVID-áfallið reið yfir. Lærdómur hefur verið dreginn af fyrri mistökum og fjölmargar ástæður eru til bjartsýni á framtíðina.

Árið 2020 verður þó afar erfitt og spáir Greining 9,2% samdrætti á árinu. Hversu hratt faraldurinn gengur niður er lykilforsenda fyrir því hversu hraður efnahagsbatinn verður. Verði faraldurinn í rénun eftir mitt ár eru góðar horfur á myndarlegum hagvexti á seinni tveimur árum spátímans.

Tekjur ferðaþjónustunnar verði innan við helmingur af tekjum síðasta árs

COVID-19 faraldurinn hefur gerbreytt efnahagshorfum til skemmri tíma. Ljóst virðist að efnahagssamdráttur verður umtalsverður á árinu 2020 en í janúar sl. spáði Greining Íslandsbanka 1,4% hagvexti fyrir árið. Spá okkar nú hljóðar upp á 9,2% samdrátt í ár.

Fyrirsjáanlegt er að tekjur ferðaþjónustunnar verða innan við helmingur af tekjum síðasta árs. Einnig mun vöruútflutningur dragast nokkuð saman vegna minni álútflutnings og hnökra á flutningum með ferskan fisk og fleiri vörur vegna COVID.

Einkaneysla mun skreppa talsvert saman vegna stóraukins atvinnuleysis, tímabundinna hamla á sumar tegundir neyslu og varkárni neytenda á óvissutímum.

Líklegt er að fjárfesting í einkageiranum dragist verulega saman. Mótvægisaðgerðir hins opinbera munu hins vegar leiða til aukinnar opinberrar fjárfestingar.

Innflutningur er líklegur til að dragast umtalsvert saman vegna minni ferðalaga erlendis, samdráttar í innlendri eftirspurn og áhrifa veikingar krónu á innbyrðis spurn eftir innflutningi og innlendum vörum/þjónustu.

Hversu hratt faraldurinn gengur niður er lykilforsenda fyrir því hversu hraður efnahagsbatinn verður. Verði faraldurinn í rénun eftir mitt ár eru góðar horfur á myndarlegum hagvexti á seinni tveimur árum spátímans.

Þjóðhagsspá Greiningar má nálgast hér.

Meðal þess helsta sem fram kemur í spánni er:

  • Hagvöxtur – Spáð er 9,2% samdrætti 2020, 4,7% hagvexti 2021 og 4,5% hagvexti 2022.
  • Utanríkisviðskipti – Útflutningur vöru og þjónustu minnkar um 22,8% á árinu og innflutningur um 14,9%. Viðskiptahalli nemur 1,2% af landsframleiðslu en afgangur verður á næsta ári.
  • Verðbólga – 2,2% verðbólga að meðaltali 2020. 2,1% 2021 og 2,3% 2022.
  • Vinnumarkaður – 9,6% meðaltalsatvinnuleysi 2020. 5,8% 2021 og 3,8% 2022.
  • Vextir – Stýrivextir verða komnir í 0,75% fyrir lok þriðja ársfjórðungs 2020. Vaxtahækkanir hefjast að nýju 2021.
  • Framtíðin – Erlend staða þjóðarbúsins er sterk, gjaldeyrisvaraforði Seðlabankans styður við krónuna og hið opinbera hefur svigrúm fyrir aukna skuldsetningu. Fjölmargar ástæður eru því til bjartsýni á framtíðina.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast