Clara valin í lokahóp U-17

Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari Íslands U-17 í knattspyrnu valdi í dag Clöru Sigurðardóttur í lokahóp sinn fyrir tvo vináttulandsleiki sem leiknir verða gegn Írum hér heima síðar í mánuðinum.  

Liðið kemur saman til æfinga um helgina og leikirnir verða svo leiknir í Fífunni þann 18.feb og svo í Kórnum þann 20.feb, að því er segir í frétt á heimasíðu ÍBV-íþróttafélags.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast