Vegagerðin álítur að enn frekari seinkun geti orðið á nýrri ferju

Umræða var um samgöngumál á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í dag. Bæjarstjóri fór yfir fund sem hún átti með Vegagerðinni þann 28. ágúst sl., þar sem fram kom að frekari seinkun væri á nýsmíðinni. 

Áætluð afhending í Póllandi er 15. nóvember nk. Væri skipið þá væntanlegt til Vestmannaeyja um mánaðarmótin nóvember/desember, en Vegagerðin álítur að enn frekari seinkun gæti orðið. Samkvæmt Vegagerðinni er staðan á Landeyjahöfn góð varðandi dýpi og áætlað er að hefja dýpkun seinni partinn í september nk. 

Unnið að ráðningu framkvæmdastjóra

Þá voru lagðir fram punktar frá Grími Gíslasyni, sem sæti á í stjórn Herjólfs ohf. Var það að beiðni formanns bæjarráðs sem óskaði eftir yfirliti yfir stöðu mála hjá Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi ohf. 

– Grímur Gíslason og Páll Guðmundsson stjórnarmenn voru á ferð í Póllandi í síðustu viku og gerðu sér ferð til Gdynia til að skoða nýsmíði Herjólfs. Er það þeirra mat að vel megi halda á spilunum ef að áætluð afhending 15. nóvember á að ganga eftir. Þeirra trú er að allt eins megi búast við frekari seinkunum og að jafnvel fari nýja ferjan ekki að sigla milli lands og Eyja fyrr en á nýju ári. 

– Unnið er að ráðningu framkvæmdastjóra og er sú vinna í ferli hjá Capacent. Stefnt er að því að framkvæmdastjóri verði ráðinn í næstu viku. 

– Fjöldi umsókna barst um aðrar stöður hjá fyrirtækinu og verður tekið til við að vinna úr þeim um leið og búið verður að ráða framkvæmdastjóra. 

– Verið er að vinna frumvinnu varðandi næstu skref við endurnýjun bókunarkerfis. 

– Gerð skírteina og vottorða er í vinnslu og miðar vel áfram. 

– Gott samstarf er við Vegagerðina varðandi eftirlit starfsmanna Vestmannaeyjaferjunni Herjólfs ohf. með smíðinni. 

– Fyrstu drög að öryggismönnun skipsins liggja fyrir og verður áfram unnið að því í samvinnu við Vegagerðina að ákveða mönnun á skipinu.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast