Vegagerðinni falið að semja við Vestmannaeyjabæ

Fyrir bæjarráði lá afrit af bréfi Samgöngu- og sveitarstjórnarrráðuneytisins. Þar sem ráðuneytið fer þess á leit við Vegagerðina að stofnunin geri drög að samningi þar sem gert er ráð fyrir að rekstur nýrrar Vestmannaeyjaferju sé í höndum Vestmannaeyjabæjar. 

Óskað er eftir því að fyrstu drög að samningi liggi fyrir og verði kynnt ráðuneytinu þann 5. okt. nk. Bæjarráð fagnar þessu skrefi og ítrekar vilja sinn til að axla ábyrgð í samgöngum milli lands og Eyja. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs frá í dag. 

Til að annast samningagerð og veita bæjarstjórn og embættismönnum faglegan stuðning við undirbúning samþykkir bæjarráð að skipa þá Pál Guðmundsson útgerðarstjóra og Grím Gíslason vélstjóra, í undirbúningshóp. Þá samþykkir bæjarráð einnig að fela Lúðvík Bergvinssyni hjá Bonafide að veita lögfræðilega ráðgjöf vegna þessa og Yngva Harðarsyni hjá Analityca að veita rekstrarhagfræðilega ráðgjöf. 

Bæjarráð samþykkir að við undirbúning á yfirtöku á rekstri ferjunnar skuli fulltrúar Vestmannaeyjabæjar ganga útfrá þegar samþykktri skilgreiningu bæjarstjórnar á þjónustuþörf samfélagsins og þar með talið að: 
 

1.Fjöldi ferða: farnar verði allt að 8 ferðir í sumaráætlun og 6 ferðir í vetraráætlun. 
2.Árstíðaráætlun: sumaráætlun gildi a.m.k. frá 1. maí til 1. okt. 
3.Hátíðardagar: siglt verði alla daga ársins. Farnar verði amk. 2 ferðir jóladag og nýársdag og að lágmarki 4 ferðir aðra hátíðardaga. 
4.Gjaldskrá: greidd verða sömu fargjöld fyrir farþega og einkabíla sama hvort siglt verður í Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn. Ekki verði um hækkun að ræða fyrir þá sem notast við afsláttarfargjöld. 
5.Vara skip: núverandi ferja verður áfram til taks og nýtt til dæmis ef upp koma bilanir eða viðhald. 
6.Bókunarkerfi: tekið verður í notkun nýtt bókunarkerfi þar sem aukin áhersla verður lögð á hagsmuni heimamanna og fyrirtækja í Vestmannaeyjum. Þannig komi til að mynda til greina að taka frá pláss á bíladekki fyrir heimamenn. 
7.Rekstrargjöld: framlög ríkisins ásamt tekjum hvers árs skulu standa undir kostnaði við rekstur. Allur mögulegur hagnaður af rekstrinum verði nýttur til að lækka fargjöld og auka þjónustu. 
8.Að áhersla verði lög á markvissar rannsóknir á Landeyjahöfn með það að markmiði að tryggt verði nægt dýpi og innsiglingin bætt frá því sem nú er.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast