Við og hinir

Við vitum að á Íslandi eru stunduð mannúðarstörf. Með því er átt við fjölskylduhjálp, líknarmeðferð á sjúkrahúsum, endurhæfing þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða, fjárgjafir til íbúa jarðskjálftasvæðis sem hefur orðið illa úti og …? Er þörf á að nefna meira? 

Rauði krossinn á Íslandi telur 42 deildir og í Landsbjörgu eru 18 þúsund félagar og sjálfboðaliðar. Við gerum ekki mun á hjálpar- og mannúðarstöfum af því að við erum siðrænir mannvinir og stundum þau þegar þarf. Sjálf höfum við þegið hjálp að utan í neyð og þakkað fyrir mannúð þegar náttúruöfl hafa gert okkur tjón, óhamingju og mannskaða. Okkur er ekki tamt að setja kostnað við mannúð upp á móti öðrum samfélagskostnaði og heimta að menn velji. Ópera eða líknardeild? Snjóflóðavarnir eða ókeypis máltíðir skólabarna? Móttaka bátafólks eða jarðgöng? Nei, þetta er einfaldlega bæði og.

   Í stríðshrjáðum löndum, sem má telja á annan tug, og löndum þar sem einföldustu mannréttindi eru úr gildi færð telst fólk í neyð. Það flýr til að finna lágmarksfrið og möguleika á að lifa mannsæmandi lífi.

   Samkvæmt Mannréttindayfirlýsingu SÞ sem Íslendingar samþykkja og styðja (sjá 14. grein – 1. atr.) „hafa allir rétt til að leita og njóta griðlands erlendis gegn ofsóknum“. Orðin eru alveg ljós og við þau eigum við að standa enda segir í 30. grein að ekkert í yfirlýsingunni megi túlka á þann veg að nokkru ríki, hópi eða einstaklingi sé heimilt að aðhafast nokkuð það sem stefni að því að gera að engu þau réttidi eða frelsi sem talin eru þar upp.

   Árið 2015 leituðu hingað 335 einstaklingar. Þar af af hættu 15% við, 35% var synjað, 25% vísað frá og 82 eða 25% veitt hæli. Af fjöldanum sem leitaði hingað voru 151 í umsjón Útlendingastofnunar og 193 hjá þremur sveitarfélögum. Greitt er með hverjum og einum meðan úrlausn er ákveðin og rennur bróðurparturinn af því fé til umsjónaraðila en ekki til hælisleitandans beint,

   Spáð var 600-800 umsóknum á þessu ári og voru 162 mál í vinnslu hjá hinu opinbera í janúar 2016. Fái 20% af 700 manns jákvæða úrlausn eru það 140 einstaklingar. Giska má á að nokkur hundruð manns hafi fengið hér hæli á einum áratugi; meðal tugþúsunda útlendinga sem margir hverjir bíða ríkisborgararéttar og hafa lang-langflestir auðgað þjóðfélagið.

   Við getum öll ímyndað okkur flótta og neyð hinna, ekki satt? Þegar svo við erum orðnir hinir einhvern daginn þökkum við fólki og hamingjunni, jafnvel guði, fyrir það sem allir geta líka ímyndað sér: Auðsýnda mannúðina. Vissulega er til sveiflukenndur hámarksfjöldi á ári sem unnt er að sinna sómasamlega. Finnum hann í stað þess að deila um sammannlegt hlutverk hins viti borna.

 

Ari Trausti Guðmundsson

Höfundur skipar 1. sæti á lista VG í Suðurkjördæmi

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast