Láta af störfum eftir áratuga starf

Nú um áramótin kvöddu þrír liðsmenn Slökkviliðs Vestmannaeyja – með samtals 128 ára starfsferil að baki. Ragnar Þór Baldvinsson slökkviliðsstjóri er einn þeirra en hann á að baki 44 ár í liðinu.

Þá kvöddu þeir Óskar Árnason og Þórarinn Sigurðsson en báðir hafa þeir starfað í 42 ár í Slökkviliðinu.

„Slökkvilið Vestmannaeyja vill þakka þeim fyrir samstarfið og þjónustuna í gegnum tíðina og óskar þeim gleðilegs árs og alls hins besta á þessum merku tímamótum“ segir á facebook síðu Slökkviliðsins.

Enn hefur ekki verið tilkynnt um hver taki við starfinu af Ragnari Þór en Stefán Örn Jónsson varaslökkviliðsstjóri mun væntanlega stýra liðinu þar til ráðinn hefur verið nýr slökkviliðsstjóri.

 

Uppfært:

Samkvæmt heimasíðu Slökkviliðsins er Friðrik Páll Arnfinnsson nú starfandi slökkviliðsstjóri.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast