Jötunn gefur húsgögn á Hraunbúðir

Eitt af þeim samtökum sem eru velunnarar Hraunbúða er sjómannafélagið Jötunn.  Þeir góðu piltar gáfu Hraunbúðum ný húsgögn í sólhúsið, stóla og borð.

Er þeim þakkað innilega fyrir rausnarlegt framlag til heimilisins og vonandi eiga þeir líka eftir að njóta góðs af fallegum og vönduðum aðbúnaði á Hraunbúðum í framtíðinni.  Þorsteinn Ingi Guðmundsson formaður og Kolbeinn Agnarsson varaformaður afhentu húsgögnin formlega í kaffisamsæti þann 20. Ágúst að því er fram kemur á heimasíðu Hraunbúða, hraunbudir.is.

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast