Jólasælgætissala Kiwanisklúbbsins Helgafells fer fram næstu helgi

Í fjölmörg ár hafa félagar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli selt jólasælgæti til bæjarbúa og hefur ágóðin runnið til góðgerðarmála. Við birtum hér að neðan tilkynningu frá Kiwanis og um leið hvetjum við alla til að styrkja þetta góða málefni.

Hin árlega jólasælgætissala Kiwanisklúbbsins Helgafells, mun fara fram helgina 27- 29. nóvember nk.

Allur ágóði af sölu sælgætisins rennur til hinna ýmsu góðgerðamála í bænum, og er það von og ósk okkar Kiwanisfélaga að bæjarbúar taki vel á móti okkur nú, sem áður fyrr.

Verð á öskjunni er stillt í hóf nú sem endranær, og er verð á sælgætisöskjunni kr. 1.000 kr.

Með von um gleðilega jólahátíð

Kiwanisklúbburinn Helgafell

Nýjustu fréttir

Vinsælast

Vinsælast