Goslokahátíðin: Dagskrá dagsins
1.Júlí'22 | 08:30Goslokahátíðin heldur áfarm í dag föstudag með fjölbreyttri dagskrá. Fjölmargar listasýningar verða opnar í dag. Síðdegis verður barnaskemmtun á Stakkó og í kvöld er boðið upp á tónleika.
Hér má kynna sér dagskrá dagsins.
Föstudagur 1. júlí
08:00 - Golfklúbbur Vestmannaeyja: Volcano open.
10:00-17:00 - Einarsstofa: Kortasýning.
10:00-18:00 - Eymundsson: Sunna spákona spáir í spil og bolla.
11:00-18:00 - Eldheimar: Ljósmyndasýning á verkum Kristins Benediktssonar.
11:00-18:00 - Heiðarvegur 6: Myndlistarsýning í verslun Grétars Þórarinssonar - Guðjón Týr Sverrisson 11 ára.
13:00-15:00 - Heimaey, vinnu- og hæfingarstöð: Opið hús. Handverk og kerti til sölu.
13:00-15:00 - Stakkagerðistún: Hestaferðir í miðbænum. Lagt af stað frá planinu við Akóges. Frjáls framlög.
13:00-15:00 - Kristey.is með opinn sölubás á Bárugötu.
14:00 - Stakkagerðistún: Airbrush tattoo.
14:00-18:00 - Strandvegur 50: Myndlistarsýning og opnar vinnustofur hjá Lista- og menningarfélagi Vestmannaeyja.
14:00-18:00 - Stakkagerðistún: Myndlistarsýning - 20 félagar úr Lista- og menningarfélagi Vestmannaeyja sýna útilistaverk.
14:00-18:00 - Akóges: Myndlistarsýning - Vængir morgunroðans - Viðar Breiðfjörð.
14:00-18:00 - Safnaðarheimili Landakirkju: Myndlistarsýning - Litróf lífs og náttúru - Bjartey Gylfadóttir.
15:00 - Tónlistarskólinn: Opnun myndlistarsýningarinnar Tabú - Aldís Gló Gunnarsdóttir. 18 ára aldurstakmark.
15:30 - Stakkagerðistún: Barnaskemmtun í boði Ísfélags Vestmannaeyja. Gunni og Felix, Sumarsirkus Húlladúllunnar, Latibær og BMX brós.
15:30 - Hótel Vestmannaeyjar: Opnun myndlistarsýningarinnar Vængjaþytur vonar - Erna Ingólfsdóttir Welding.
17:00 - Cracious kró: Opnun myndlistarsýningarinnar Landslög - Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir.
18:00 - Strandvegur 69: Opnun sýningar Ómars Smára Vídó í höfuðstöðvum GELP Diving. Teikningar og myndverk til sýnis og sölu. Allur ágóði rennur í námssjóð Ómars Smára.
20:00 - Höllin: Tónleikar - Bjartmar og Bergrisarnir.
22:00-01:30 - Prófasturinn: Tónleikar - Galdrakarlinn, Molda, Foreign Monkeys og Sveitta nostalgíubandið. Frítt inn!
23:00-02:00 - Höllin: Kátt í Höllinni ehf. býður öllum frítt á ball. Gullöldin leikur fyrir dansi.
Tags
GoslokahátíðMá bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...