Gleðilega Þjóðhátíð - dagskrá dagsins
17.Júní'22 | 05:33Í dag eru liðin 78 ár frá stofnun lýðveldisins. Ritstjórn Eyjar.net óskar Íslendingum nær og fjær gleðilegrar þjóðhátíðar. Að venju verða hátíðarhöld um land allt og eru Vestmannaeyjar engin undantekning þar á.
Dagskrána má sjá hér að neðan.
17. júní 2022
9:00
Fánar dregnir að húni í bænum
11:00 Hraunbúðir
Fjallkonan – Tanya Rós Jósefsdóttir Goremykina flytur hátíðarljóð
Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Vestmannaeyja
11:00 Skátamessa í Landakirkju
Séra Viðar Stefánsson þjónar
Skátar segja frá hreyfingunni og upplifun sinni að vera í Skátunum. Skátasöngvar sungnir.
13:30 Íþróttamiðstöð
Bæjarbúar og aðrir gestir safnast saman fyrir skrúðgöngu. Lagt af stað kl 13:45.
Gengið verður í lögreglufylgd frá Íþróttamiðstöðinni niður Illugagötu, inn Faxastíg og áfram Vestmannabraut að Stakkagerðistúni.
Fánaberar úr Skátafélaginu Faxa leiða gönguna og félagar úr Lúðrasveit Vestmannaeyja leika undir.
14:00 Stakkagerðistún
Hildur Rún Róbertsdóttir, formaður fjölskyldu- og tómstundaráðs setur hátíðina.
Lúðrasveit Vestmannaeyja spilar.
Hátíðarræða – Geir Jón Þórisson
Börn af Víkinni, 5 ára deild, syngja nokkur lög.
Fjallkonan – Tanya Rós Jósefsdóttir Goremykina flytur hátíðarljóð
Tónlistaratriði – Blítt og létt hópurinn
Ávarp nýstúdents – Svala Guðný Hauksdóttir
Fimleikafélagið Rán – Sumardans undir stjórn Guðrúnar Elfu
Hoppukastalar og fjör ef veður leyfir
Frítt inn á Sagnheima í tilefni dagsins
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.