Blandaður afli hjá Eyjunum
20.Maí'22 | 17:52Vestmannaeyjaskipin, Bergey VE og Vestmannaey VE, héldu til veiða sl. sunnudag og lönduðu síðan bæði fullfermi sl. miðvikudag.
Þau héldu til veiða á ný í gærkvöldi eftir rúmlega sólarhrings stopp í landi. Rætt er við Jón Valgeirsson, skipstjóra á Bergey, á heimasíðu Síldarvinnslunnar í dag. Hann er fyrst spurður um hvernig túrinn hafi gengið.
„Það má segja að þetta hafi verið fínasti túr þó bræla hafi truflað okkur talsvert. Við byrjuðum á Víkinni og á Pétursey en þar fékkst helst þorskur. Áformað var að reyna við djúpkarfa en brælan kom í veg fyrir það. Í stað þess fórum við að Ingólfshöfða of þar fengum við steinbít, skarkola og lemma eða sólkola. Við gerðum okkur vonir um að fá ufsa en hann lætur ekki sjá sig blessaður. Núna erum við á Sneiðinni að reyna við djúpkarfa og það er heldur rólegt hjá okkur,“ segir Jón.
Aflinn, sem Vestmannaey landaði á miðvikudag, var mest þorskur og ýsa sem fékkst á Péturey og Vík. Þegar haft var samband við skipið í morgun sagði Egill Guðni Guðnason stýrimaður að verið væri að sigla utan við Skarðsfjöruna í austurátt og væri ætlunin að skoða Ingólfshöfðasvæðið.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.