Óska eftir aukafjárveitingu vegna dýpkunar
16.Maí'22 | 07:44Í fjárhagsáætlun Vestmannaeyjahafnar fyrir árið 2022 var gert ráð fyrir dýkun að andvirði 30 milljónir.
Við frekari dýptarmælingar kom í ljós að dýpka þarf stærra svæði en ráðgert var. Hafnarstjóri telur einnig þörf á að dýpka í innsiglingarennunni til að auðvelda móttöku stórra skipa. Könnun á kostnaði gerir ráð fyrir 45 milljónum í verkið, segir í fundargerð framkvæmda- og hafnarráðs.
Ráðið óskar eftir því við bæjarráð að veitt verði aukafjárveiting á árinu 2022 að upphæð 15 milljónir til að mæta auknum kostnaði við dýpkun á árinu 2022. Fjárhæðin skal fjármögnuð með eigin fé Vestmannaeyjahafnar.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.