Framboðsfundur - bein útsending
11.Maí'22 | 19:25Á laugardaginn nk. ganga landsmenn til sveitarstjórnarkosninga. Af því tilefni efna fjölmiðlarnir í Eyjum til opins framboðsfundar í Eldheimum í kvöld.
Fulltrúar framboðanna þriggja sem bjóða fram í Eyjum, Þ.e. Eyjalistans, Fyrir Heimaey og Sjálfstæðisflokksins, verða á fundinum til að kynna framboðin og svara spurningum fundargesta.
Fundurinn hefst kl. 20:15, en húsið opnar kl 20:00 og verða léttar veitingar í boði. Beint streymi frá fundinum má sjá neðst í þessari frétt.
Dagskrá:
- Einn frambjóðandi frá hverjum lista fá um 5 mín. til að kynna framboðin fyrir fundargestum (alls 15 mín.).
- Frambjóðendum gefst færi á að spyrja önnur framboð 2-3 spurninga (um 15 mín.).
- Fundargestum gefst færi að spyrja frambjóðendur hnitmiðaðra og málefnalegra spurninga (um 60 mín.)
- Einn frambjóðandi frá hverjum lista fá 3 mín. í formi lokaorða (um 10 mín.).
Tags
X2022
Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.