Þyrla Gæslunnar lenti á Hamrinum til að sækja sjúkling
8.Maí'22 | 20:50TF-GNA, þyrla Landhelgisgæslunnar, lenti á Hamrinum í Vestmannaeyjum laust fyrir sjö í kvöld og sótti sjúkling sem komast þurfti undir læknishendur í Reykjavík.
Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar gat sjúkraflugvél Mýflugs ekki tekið verkefnið að sér vegna veðurs. Hann segir að þoka hafi ollið því að ekki reyndist unnt að lenda á flugvellinum og ákvað áhöfn þyrlunnar að lenda á Hamrinum.
„Um 19 hnúta vindur var á flugvellinum á þessum tíma en frekar lygnt var á Hamrinum þegar þyrlan lenti þar. Þyrlan lenti svo á Reykjavíkurflugvelli á áttunda tímanum og var sjúklingnum ekið með sjúkrabíl á Landspítalann.” segir Ásgeir í samtali við Eyjar.net.
Fleiri ljósmyndir frá Hamrinum í kvöld má sjá hér að neðan.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...