Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar:
Bættar samgöngur - fyrir þig
18.Mars'22 | 10:08Til að Vestmannaeyjar verði að enn eftirsóknarverðari búsetukosti, til að bæta lífsgæði íbúa og til að efla fjölbreytt atvinnulíf er mikilvægt að samgöngur komist í betra horf.
Þrátt fyrir að vissulega hafi veður verið slæm eru aðstæður Landeyjahafnar hvergi nærri nógu góðar og flugsamgöngur þarf að bæta.
-
Dýpkun Landeyjahafnar er fyrsta breytan sem einfaldast er að hafa áhrif á, við þurfum sem allra fyrst öflugt dýpkunarskip sem afkastar miklu á stuttum tíma við eins erfiðar aðstæður og mögulegt er en ekki síst þurfum við varanlegri lausn til að tryggja viðunandi dýpi í hafnarmynninu.
-
Rekstur Herjólfs þarf áfram að vera á hendi heimamanna til þess að við sem notum þjónustuna, getum stýrt henni, bætt hana og þróað eftir þörfum samfélagsins.
-
Flugsamgöngur hafa verið sögulega slakar á undanförnum árum. Samfélagið þarf flug alla daga, tvisvar á dag, með hentugum tímasetningum til að íbúar sjái flugið sem raunhæfan valkost og til að þjóna atvinnulífi og heilbrigðisþjónustu sem best.
-
Klára þarf rannsóknir vegna jarðgangna og kostnaðarmeta með hliðsjón af öðrum innviðum sem þarfnast brýnnar uppfærslu á borð við sæstreng og vatnsleiðslu.
Það þarf að bæta samgöngur - fyrir þig.
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.