Páll Scheving skrifar:
Að bíta sig í hælana!
24.Febrúar'22 | 08:00Í minni fjölskyldu eru fimm uppkomin börn. Barn er alltaf barnið þitt, þó það fullorðnist. Eitt af því sem ég hef átt erfiðast með í seinni tíð varðandi áhyggjur af mínum börnum, eru ferðalög þeirra milli Eyja og höfuðborgarinnar.
Þessi akstur um umferðarþungann og þröngan Suðurlandsveginn oft í slæmum skilyrðum veldur mér ónotum. Ég viðurkenni það fúslega, mér finnst þetta ekki öruggt. Kannski er þetta aldurinn! Svo gæti þetta líka verið umhugsunarefni?
Það voru því gleðitíðindi fyrir mig þegar Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra samgöngumála, lagði fyrir nokkru fram þá hugmynd að fara í umtalsverðar, nauðsynlegar og hraðar bætur á vegakerfinu. Sú hugmynd grundvallaðist á því að kostnaður við þessi fjárfreku verkefni yrði endurgreiddur af notendum, með veggjöldum.
Ég fagnaði þessum hugmyndum. Þetta myndi auka öryggi í umferðinni. Tryggja greiðari samgöngur og ég hélt að sveitarfélög á Suðurlandi myndu stökkva á vagninn og þrýsta á framkvæmdir. En mér varð ekki að ósk minni. Mjög hávær mótmæli hrökktu ráðherrann frá málinu. Þetta er landsbyggðarskattur hrópuðu margir, óréttlátir tollar sögðu aðrir og nokkrir urðu sjóveikir.
En hver er staðan núna? Hvenær upplifum við öruggari samgöngur á Suðurlandsvegi, hvenær verður tvöföldun Suðurlandsvegar staðreynd? Erum við reiðubúin að flýta verkinu og greiða eitthvað fyrir öryggi okkar og afkomenda okkar, og eflingu þeirra samfélaga sem við lifum í? Hverjir eru að vinna í þessu í dag? Hvar eru hugmyndir þeirra sem hrópuðu sem hæst gegn lausninni?
Ég held að það sé ekkert að gerast og ekki stendur ríkisjóður betur eftir heimsfaraldurinn!
Mér finnst landsbyggðin stundum bíta sig í hælana!
Páll Scheving
Höfundur: Páll Scheving Ingvarsson
Verksmiðjustjóri. Fæddur í Vestmannaeyjum 24. Janúar 1963. Maki er Hafdís Kristjánsdóttir. Áhugamál eru mannlíf og náttúran.
Far þú í friði vinur
1.Júlí'21 | 07:44Maður með byssu
4.Ágúst'20 | 08:50Stór maður, stutt kveðja
20.Maí'20 | 08:03Hinsegin fólk, lífið og kirkjan!
26.Janúar'15 | 09:05Þjáningin & kærleikurinn
18.Desember'14 | 13:19Það er ekkert fokking jafnrétti ?
3.Desember'14 | 08:18London vs Vestmannaeyjar!
27.Nóvember'14 | 20:22Hjálparstarf Kirkjunnar þarf að útskýra málið betur
1.Október'14 | 10:47Kobbojarar
9.September'14 | 06:22Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.