Fréttatilkynning:
Sjálfsafgreiðslukössum vel tekið
8.Febrúar'22 | 13:08Eyjamenn fengu þrjá sjálfsafgreiðslukassa og eitt afgreiðslupúlt í verslun Krónunnar í byrjun desember síðastliðnum og hefur nýting á kössunum verið vonum framar. Í dag fer um helmingur af öllum innkaupum í gegnum sjálfsafgreiðslukassana á móti beltakössum.
Að sögn Ólafs Björgvins Jóhannessonar, verslunarstjóra Krónunnar í Vestmannaeyjum, hafa viðskiptavinir verslunarinnar tekið lausninni afar vel þótt einhverjar efasemdir hafi fengið að hljóma en um er að ræða fyrstu sjálfsafgreiðslukassana í Vestmannaeyjum.
„Okkar viðskiptavinir hafa tekið lausninni fagnandi, þá sérstaklega í tilfellum þegar karfan er minni og vilji er fyrir því að sleppa röð á beltakassa eða fara hraðar í gegnum verslun. Við höfðum heyrt áhyggjur af því að tæknin væri að taka yfir og að starfsfólki myndi fækka með komu kassanna en svo er ekki. Í staðinn tekst okkur að auka og efla þjónustuna og störfin innan verslunar verða á sama tíma fjölbreyttari. Sjálfsafgreiðslukassarnir komu sér afar vel um jólin og gefur það góða mynd af því hvernig þeir geta nýst á álagstímum, t.d. þegar sumarið gengur í garð með stórum íþróttamótum, Þjóðhátíð og öllum ferðamönnunum. Við starfsfólkið erum alltaf boðin og búin til aðstoða viðskiptavini við sjálfsafgreiðslu og þökkum kærlega fyrir frábærar viðtökur á þessari þjónustunýjung hér í Eyjum,“ segir Ólafur.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...