Unnið að umbótaáætlun hjá GRV
19.Janúar'22 | 07:20Ytra mat Grunnskóla Vestmannaeyja var til umfjöllunar á fundi fræðsluráðs í vikunni. Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri GRV kynnti þar helstu niðurstöður úr ytra mati Menntamálastofnunar á Grunnskóla Vestmannaeyja.
Matið kom heilt yfir ágætlega út, styrkleikarnir eru margir en tækifæri til umbóta einnig nokkur. Skólinn vinnur að umbótaáætlun út frá niðurstöðum matsins sem skilað verður til Menntamálastofnunar.
Fram kemur í afgreiðslu ráðsins að þessi úttekt styrki skólann í að hann sé að vinna vel og þá getur hann nýtt góða leiðsögn sem kemur fram í tillögum til úrbóta til að gera enn betur. Skólastjóra er falin eftirfylgni umbóta í samvinnu við skólaskrifstofu.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...