Ársrit knattspyrnudeildar ÍBV komið út
4.Janúar'22 | 11:36Ársrit knattspyrnudeildar ÍBV er komið út fyrir árið 2021. Árið var mjög gott hjá ÍBV þar sem karlaliðið tryggði sér sæti í efstu deild á ný með því að enda í 2. sæti Lengjudeildarinnar í sumar.
Meistaraflokkur kvenna hjá félaginu hélt sæti sínu í efstu deild og vann glæsta sigra á tímabilinu, t.a.m. á móti Breiðabliki í upphafi tímabils.
Ársritið er fullt af skemmtilegum stuttum pistlum og viðtölum við stóra karaktera sem tengjast klúbbnum þar á meðal leikmenn og þjálfara meistaraflokka liðsins. Þá er einnig samantekt yngri flokka auk þess að myndir frá tímabilinu birtast.
Knattspyrnudeild ÍBV vill þakka fyrir allan stuðninginn á árinu og óskar í leiðinni öllum stuðningsmönnum liðsins gleðilegs nýs árs, segir í frétt á heimasíðu ÍBV.
Tags
ÍBV
Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.