Hvenær og hvaða bóluefni býðst mér
22.Nóvember'21 | 13:53Þessa dagana standa yfir örvunarbólusetningar vegna covid-19 sem landsmenn eru hvattir til að nýta sér.
Á vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er farið betur yfir hvenær og hvaða bóluefni bjóðist hverjum og einum.
- Einstaklingar sem fengu Pfizer í fyrstu bólusetningu, fá boð í aðra bólusetningu 3-6 vikum síðar og boð í örvunarbólusetningu, 6 mánuðum frá bólusetningu 2.
- Einstaklingum 70 ára og eldri býðst þó að koma í örvunarbólusetningu 3 mánuðum eftir bólusetningu 2.
Hér fyrir neðan má sjá töflu til að átta sig á hvenær æskilegt er að koma í bólusetningu vegna COVID-19 út frá því hvaða bóluefni viðkomandi hefur fengið eða hvort hann smitaðist af COVID-19.
Taflan verður aðgengileg undir „Covid-19 HSU“ skiltinu á vefsíðu HSU.
Athugið þó að listinn er ekki tæmandi en nánari upplýsingar um eigin dagssetningar hvers einstaklings má finna inni á www.heilsuvera.is.
Mynd/hsu.is

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.