ÍBV fær liðsstyrk í fótboltanum
20.Nóvember'21 | 17:12Alex Freyr Hilmarsson hefur samið við ÍBV til næstu 3ja ára. Alex kemur frá KR en hann hefur einnig leikið með Grindavík og Víkingi R í efstu deild.
Þessi öflugi miðjumaður hefur spilað 295 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 60 mörk, segir í frétt á vefsíðu ÍBV-íþróttafélags.
Enn fremur segir í fréttinni að Alex Freyr sé menntaður sjávarútvegsfræðingur og mun fjölskylda hans flytja með honum til Eyja. Þá segir að Alex muni styrkja lið ÍBV í baráttunni í deild þeirra bestu.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.