Áfram siglt til Þorlákshafnar
8.Nóvember'21 | 15:42Herjólfur siglir til Þorlákshafnar seinni partinn í dag, en þangað sigldi hann fyrri ferð dagsins einnig.
Brottför er frá Vestmannaeyjum kl. 16:00 og frá Þorlákshöfn kl. 19:45.
Í tilkynningu frá Herjólfi ohf. segir að þeir farþegar sem áttu bókað á þessum tímasetningum hafa verið færðir sjálfkrafa á milli hafna, aðrir þurfa að hafa samband við skrifstofu okkar til þess að færa bókun sína.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eigin búnað. Á þessum árstíma er alltaf hætta á færslu milli hafna og því er ekki æskilegt að skilja bifreið eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn, þá verður gefin út tilkynning kl. 06:00 í fyrramálið, segir í tilkynningunni.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.