Birgir yfirgefur Miðflokkinn
9.Október'21 | 07:05Birgir Þórarinsson, oddviti Miðflokksins í Suðurkjördæmi hefur sagt skilið við flokkinn og er hann genginn til liðs við þingflokk Sjálfstæðisflokksins.
Birgir staðfestir þetta í samtali við Morgunblaðið í dag, sem og Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn telur þá 17 þingmenn, en þingflokkur Miðflokksins telur nú aðeins tvo.
Í Morgunblaðinu segir Birgir Þórarinsson að vistaskiptin megi rekja allt aftur til uppákomunnar á Klaustri árið 2018. Sjálfur hafi hann fordæmt framferði samflokksmanna sinna þar, og segist hann hafa vonað að um heilt hafi gróið síðan. Annað hafi komið á daginn. Eftir mikla umhugsun hafi hann ákveðið að hann ætti ekki lengur samleið með hinum þingmönnum Miðflokksins.
Birgir ráðfærði sig við trúnaðarmenn Miðflokksins í Suðurkjördæmi, þar á meðal Ernu Bjarnadóttur sem var í öðru sæti lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi. Hún er varamaður Birgis á þingi, en verður þingmaður Sjálfstæðisflokksins ef hún tekur sæti Birgis.
Birgir segir í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að eftir gagnrýni hans á Klausturmálið hafi hann aldrei notið fulls trausts innan þingflokksins. Um tíma hafi verið litið á hann sem vandamálið. Það hafi átt sér margar birtingarmyndir sem hann vilji ekki rekja í löngu máli.
Hann segist hafa talið að þessu væri lokið þegar undirbúningur hófst fyrir kosningarnar í haust. Fljótt hafi komið í ljós að svo var ekki, heldur hafi skipulögð aðför gegn honum farið fram af hálfu áhrifafólks innan flokksins til þess að halda honum frá efsta sætinu.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.