Vestmanney á landleið með fullfermi
25.Ágúst'21 | 12:32Ísfisktogarinn Vestmannaey VE er væntanlegur til heimahafnar í Vestmannaeyjum í dag um hálffjögur leytið. Skipið er með fullfermi en það landaði síðast sl. sunnudagskvöld.
Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Egil Guðna Guðnason stýrimann og spurði fyrst hvar hefði verið veitt.
„Við vorum við Ingólfshöfðann og austur í Sláturhúsinu. Aflinn er að mestu ýsa og þorskur og svo er pínulítið af ufsa. Veðrið var afskaplega gott en þó vorum við í leiðinda suðvestan streng í gær. Það voru ábyggilega 12-15 metrar akkúrat þar sem við vorum að veiðum. Túrinn var tíðindalítill ef undan er skilið smá bras sem við lentum í. Við lentum í því að trollið vafðist upp hjá okkur og varð eins og kaðall. Þetta var afar sérstakt og enginn hér um borð hefur séð þetta gerast áður. Það tók talsverðan tíma að greiða úr þessu en það tókst farsællega,“ segir Egill Guðni.
Systurskip Vestmannaeyjar, Bergey VE, hélt til veiða í gær, segir jafnframt í fréttinni.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...