Ákall til Eyjamanna
25.Ágúst'21 | 18:15Líkt og kunnugt er hefur Þjóðhátíð verið felld niður síðustu tvö ár vegna sóttvarnaraðgerða. Þetta setur ÍBV íþróttafélag í mjög alvarlega fjárhagsstöðu þar sem Þjóðhátíð er stærsta fjáröflun félagsins.
Félagið rær lífróður til að geta haldið starfsemi félagsins áfram. Það er öllum hér í Eyjum ljóst að ÍBV er þekktasta merki Eyjanna og hefur borið hróður þeirra víða um land. Í ljósi þessarar stöðu sem félagið er í, viljum við biðla til ykkar sem hafið tök á því, að leysa ekki út aðgangsmiðana heldur færa þá til næsta árs. Við höfum óbilandi trú á því að það verði haldin Þjóðhátíð árið 2022.
Að endingu má benda á að hægt er að styrkja félagið um miðakaupin í heild sinni eða að hluta til, hafi fólk tök á.
Fyrir hönd stjórnar
Þór Í. Vilhjálmsson
Greinin birtist fyrst á vef ÍBV-íþróttafélags.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...