Endurnýjuðu samstarfssamning um heilsueflingu eldri borgara
17.Ágúst'21 | 10:59Vestmannaeyjabær og Janus-heilsuefling hafa endurnýjað samstarfssamning um heilsueflingu og rannsóknarverkefnið „Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum – Leið að farsælum efri árum".
Verkefnið er fram af tveggja ára verkefni og er Vestmannaeyjabær fyrsta sveitafélagið sem býður íbúum upp á framhaldsnámskeið, að því er segir í umfjöllun um málið á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.
Verkefnið í Vestmannaeyjum hófst í september 2019 og hefur þrátt fyrir Covid-19 faraldur og samkomutakmarkanir, leitt af sér framfarir á sviði hreyfifærni, þols og styrks auks þess sem mat einstaklinga á eigin heilsu hefur aukist á þjálfunartímanum. Markmið verkefnisins er að stuðla að bættri heilsu og lífsgæði eldri aldurshópa, draga úr útgjöldum ríkis og sveitarfélaga og vera fyrirmynd að heilsutengdum forvörnum. Um 80 þátttakendur tóku þátt í verkefninu. Verkefnið byggir á doktorsverkefni dr. Janusar Guðlaugssonar, íþrótta- og heilsufræðings. Hann í samstarfi við hæfa aðila frá Vestmannaeyjum stýra verkefninu. Það er ánægjulegt að sjá hversu margir þátttakendur eru í verkefninu og mikill stöðugleiki er í hópnum. Stöðuleikinn birtist í þeim góða árangi sem hópurinn hefur náð. Vestmannaeyjabær vill þakka Janusi og hans starfsfólki fyrir þeirra framlag til heilsueflingar í Eyjum, einnig gott samstarf við HSU í Vestmannaeyjum og sérstakar þakkir til þátttakenda í verkefninu.
Vestmannaeyjabær er stoltur af því að bjóða uppá þetta frábæra verkefni áfram, segir í umfjölluninni.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.