Nýjar heimsóknarreglur taka gildi á HSU
21.Júlí'21 | 23:09Í ljósi fjölgunar COVID-19 smita í samfélaginu verður heimsóknarreglum á HSU breytt frá og með fimmtudeginum, 22. júlí.
Breytingarnar fela í sér takmörkun á komum gesta en sjúklingur má fá einn gest til sín á heimsóknartíma. Jafnframt er mælst til þess að börn undir 12 ára aldri komi ekki í heimsókn.
Fólk sem hefur einhver einkenni smitandi sjúkdóma er beðið að fresta heimsóknum þar til einkennin eru gengin yfir. Grímuskylda er í gildi hjá heimsóknargestum á HSU á meðan heimsókn varir, segir í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...