Hlaðvarpið - Eiður Arnarsson
24.Júní'21 | 12:34Í sautjánda þætti er rætt við Eið Arnarsson um líf hans og störf. Eiður ræðir við okkur um hvernig er að alast upp í eyjum, fjölskylduna, tónlist og ýmislegt fleira.
Í seinni hluta þáttarins fáum við að heyra upplestur á grein úr Gamalt og nýtt, mánaðarriti síðan júní 1950, sem Einar Sigurðsson var ritstjóri af.
Greinin sem lesin er ber nafnið Brúðkaupsveizlur í Kumbaldanum og er Heimildarmaður Ólöf Jónsdóttir, Byggðarholti, Vestmannaeyjum. Síðar er lesin kaflinn Brúðkaupsveizlur, brúðargangur og fleira úr fyrsta bindi Sögu Vestmannaeyja sem Sigfús M. Johnsen skrifaði.
Þetta sögubrot er í boði Bókasafns Vestmannaeyja.
Endilega fylgjið okkur á Facebook og Instagram undir nafninu Vestmannaeyjar – Mannlíf og saga. Hér má hlusta á fyrri hlaðvörp Mannlífs og sögu.
Þátturinn á Spotify. (Í einhverjum vöfrum kemur ekki allur þátturinn í spilaranum hér að neðan). Því má nálgast þáttinn í hlekknum hér að framan.
Mannlíf og saga er hlaðvarp/podcast. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og verður hlaðvarpið aðgengilegt á Eyjar.net ásamt helstu veitum svo sem Spotify og Youtube. Einnig er hlaðvarpið á samfélagsmiðlunum Facebook, Instagram og Twitter.
Það eru þau Alma Eðvaldsdóttir, Hinrik Ingi Ásgrímsson og Snorri Rúnarsson sem standa á bakvið hlaðvarpið og er það byggt uppá viðtali við fólk sem tengist Eyjum á einn eða annan hátt.
Rætt er við fólk um líf þeirra og störf. Eftir viðtalið er síðan smá sögubrot úr Eyjum sem starfsfólk Bókasafns Vestmannaeyja er búið að taka saman.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.