Níu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
10.Apríl'21 | 14:30Níu frambjóðendur taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer laugardaginn 29. maí nk.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi kom saman nú fyrir hádegið og fór yfir framboð sem bárust áður en framboðsfrestur rann út. Voru þau öll úrskurðuð gild. Um er að ræða 3 konur og 6 karla. Meðalaldur frambjóðenda er 47 ár. Í prófkjörinu velja þeir sem taka þátt 5 frambjóðendur hver, segir í tilkynningu frá kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Frambjóðendur eru:
Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, Reykjanesbæ
Björgvin Jóhannesson, fjármálastjóri, Sveitarfélaginu Árborg
Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps, Skaftárhreppi
Guðbergur Reynisson, framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ
Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri, Hveragerði
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, laganemi, Rangárþingi eystra
Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri, Vestmannaeyjum
Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
Vilhjálmur Árnason, alþingismaður, Grindavík

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.