Starfslaun bæjarlistamanns
5.Apríl'21 | 12:15Vestmannaeyjabær hefur nú auglýst eftir umsóknum og tillögum um bæjarlistamann Vestmannaeyja fyrir árið 2021.
Fram kemur í auglýsingunni að starfslaun bæjarlistamanns Vestmannaeyja megi veita einstaklingi, hópi listamanna eða félagasamtökum. Bæjarlistamaðurinn skuldbindur sig til að skila af sér menningarstarfi í formi listsköpunar, sem unnin er á starfsárinu.
Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl 2021. Bæjarráð velur úr framkomnum umsóknum og tillögum og úthlutar 1. maí.
Umsóknum skal skila á neðangreint netfang eða á bæjarskrifstofur Vestmannaeyja við Bárustíg, og skulu þær vera í samræmi við reglur um starfslaun bæjarlistamanns.
Nánari upplýsingar veitir Matthildur Halldórsdóttir með tölvupósti (matthildur@vestmannaeyjar.is) eða í síma 488-2000.
Tags
Vestmannaeyjabær
Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.