Niðurstaða komin í færslu minnismerkis
Minnismerki verður fært innan svæðisins eins og samþykkt hafði verið
31.Mars'21 | 08:26Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja á mánudaginn var tekið fyrir frestað erindi er varðar staðsetningu minnismerkis Þórs í botni Friðarhafnar. Bæjarstjórn fól formanni umhverfis- og skipulagsráðs og skipulagsfulltrúa að ræða við bréfritara.
Bréf frá formanni Björgunarfélags Vestmannaeyja var sent til bæjaryfirvalda þann 18 janúar 2021.
Í niðurstöðu ráðsins segir að eins og fram komi í innsendu erindi er óskað eftir að fá flutning á minnismerki Þórs á lóð austan við Sjóbúð Björgunarfélagsins. Einnig kemur fram að Björgunarfélagið og lóðarhafi hafa gert með sér samkomulag um nýtingu á norð-austur hluta lóðarinnar fyrir merkið.
Ítrekað hefur verið við bréfritara að skriflegt samkomulag við lóðarhafa beri að skila til bæjaryfirvalda þar sem um er að ræða byggingarreit og lóðarhafi því að afsala sér byggingarrétti á umræddum reit. Ekki hefur verið brugðist við þessari ítrekun.
Ráðið getur ekki orðið við erindinu. Minnismerki verður fært innan svæðisins samkvæmt gildandi skipulagi, sem samþykkt var 2013.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...