Ekki mögulegt að úthluta stöðuleyfum á Vigtartorgi í sumar
2.Mars'21 | 16:55Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja fjallaði um stöðuleyfi fyrir ferðaþjónustuna á fundi sínum í gær.
Fram kemur í fundargerð ráðsins að vegna framkvæmda við Vigtartorgið í ár verður ekki hægt að úthluta stöðuleyfum á torginu í sumar. Skipulags-og umhverfisfulltrúi mun kynna fyrir ráðinu hvaða svæðum verður hægt að úthluta fyrir stöðuleyfi í tengslum við ferðarþjónustu sumarið 2021.
Í niðurstöðu ráðsins segir að ráðið feli skipulags- og umhverfisfulltrúa að kanna áhuga aðila í ferðaþjónustu á stöðuleyfum fyrir sumarið 2021.

Fréttaskot - Eyjar.net
31.Janúar'18Ertu með athyglisverða ábendingu eða frétt?
Sendu okkur línu á eyjar@eyjar.net - Fyllsta trúnaðar gætt.
Má bjóða þér að auglýsa hér?
15.Janúar'18Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...