Gul veðurviðvörun í gildi í dag
25.Desember'20 | 09:57Klukkan 12 á hádegi tekur í gildi gul viðvörun á Suðurlandi vegna suðvestan hvassviðris eða storms og élja. Viðvörunin er í gildi til klukkan 17:00.
Í viðvörunarorðum Veðurstfunnar segir: Suðvestan 15-23 m/s og talsverður éljagangur, og má búast við snörpum vindhviðum í éljahryðjum. Þetta getur skapað varasöm akstursskilyrði, einkum á heiðum.
Suðurland
Í nýrri spá Veðurstofu Íslands segir að það verði vaxandi suðvestanátt, 15-23 m/s eftir hádegi og gengur á með éljum. Hiti kringum frostmark. Dregur úr vindi í kvöld og nótt, norðaustan 5-10 m/s á morgun, bjart með köflum og frost 1 til 6 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag:
Norðan og norðaustan 15-23 m/s. Rigning eða slydda um norðanvert landið og hiti kringum frostmark, en snjókoma síðdegis. Þurrt sunnantil á landinu og hiti 1 til 5 stig.
Á mánudag:
Norðan 5-10 m/s en 10-15 m/s austantil á landinu. Dálítil él norðan- og austanlands, en bjartviðri um landið sunnan- og vestanvert. Frost 1 til 8 stig.

Fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð
10.September'18Með því að fylgja Eyjar.net færðu nýjustu fréttirnar frá Eyjum beint í æð. Smelltu hér til að fara á facebook-síðu Eyjar.net.

Mannlíf og saga - hlaðvarp
2.Mars'21Fylgstu með hlaðvarpinu Mannlíf og saga. Nýr þáttur kemur út á hverjum fimmtudegi og er hlaðvarpið aðgengilegt hér á Eyjar.net og einnig á helstu veitum, svo sem Spotify. Sjá nánar hér...
Má bjóða þér að auglýsa hér?
23.Júní'22Hér má auglýsa allt milli himins og jarðar! Sendu línu á auglysingar@eyjar.net og saman finnum við lausn sem hentar þér.